29/04/2007

Sorgleg helgi.

Já góðir hálsar. Ég er við það að myrða my sister from another father. Í dag var ég ekki heima, að læra. Þegar ég kom til baka var hún búin að fikta í tölvunni minni, myndavélinni minni og borða nammið mitt. Eina ástæðan fyrir því að ég er ekki frammi að lemja úr henni heimskuna er að það eru gestir frammi. En þegar þeir eru farnir ....

Ég er byrjuð að hata dönsku eftir að ég byrjaði að kenna manninum sem mætti á líkbíl fyrsta skóladaginn. Ég er búin að vera svo pirruð í dag.

Á föstudaginn fór ég á grímuball, án búnings. Ég var búin að gleyma að fá lánaðann ofurbúninginn hennar Hillu. Ég var á bíl, og heimferðin var skemmtilegri en ballið sjálft. Ég fór í 2 sjoppur. Freyja reyndi við Pétur - sem allt getur. Hún öskraði líka út um gluggann á einhverjar stelpur að þær væru helvítis hórur. Góður leikur. Svo tilkynnti hún einhverju ógeði sem vildi fá far heim að hann væri of leiðinlegur. Stundum er gott að vera með fólki sem er hreinskilið.

Ég kom heim af ballinu kl. 03. Ég svaf í 16 tíma, leigði mér svo vídjó og fór aftur að sofa. Í dag lærði ég. Helgin var sorgleg í öðru veldi.

Núna ætla ég bara að horfá sjónvarpið, og fara snemma að sofa. Já, ég lifi á ystu nös.

4 comments:

Anonymous said...

haha jáá pétur sem allt getur!! hann var sætur ;*

en jáá eg var ekkert endilega að öskra á þær , þær eru örugglega ágætar greyin :S

en jáá ég er líka búin að vera bitur upp á síðkastið , það er ekkert svo gaman .. en gangi þér velí prófum ;**

Jóhanna said...

Hahaha, þú varst frábær ;)

Takk æðislega og sömuleiðis. Kannski lærum við saman í FVA fyrir prófin. Ég verð þar á hverjum degi =D

:*

Anonymous said...

Hey hvar verðuru upp á spítala? Get lánað þér Grey's Anatomy til að hafa upp á spítala og skal vera ógó góð að heimsækja þig :)

Jóhanna said...

Jájá þú mátt alveg lána mér Grey's Anatomy :D

Ég verð á sjúkrahúsinu á Akranesi. Pínulítið langt fyrir þig að heimsækja mig :P hehe

Vegamót á morgun Perla! :D:D:D