Já góðir hálsar. Ég fann tíma til þess að setjast niður í ró og næði fyrir framan tölvuna og blogga. Ég er í vinnunni.
Ég er að vinna niðri í ritfangadeild í Eymundsson í Austurstræti. Hér er klukkan að verða hálf tíu og stutt í lokun. Síðan klukkan sjö hef ég setið hér aðgerðarlaus. Þá var ég búin að fylla á blekhylkin, taka á móti bókapöntun, verðmerkja hana og þjófaverja .. og þá er bara eftir að aðstoða viðskiptavini. Sem eru ekki til staðar.
Ég er reyndar með bókina Am kürzeren Ende der Sonnenallee hérna við hliðina á mér og á að vera að lesa. Ég bara nenniðí ekki. Í staðinn er mér kalt. Ég er samt með ofn á fullu hérna við hliðiná mér og heitt kakó í annarri. Ég er bara svo köld alltaf. Ég þarf alltaf að fara að sofa með 2 sængur. Mér er svo kalt á tánum. Þá verður það líka því mun verra að vakna á morgnana, þá er alltaf svo kósí og notalegt.
Í dag fengu allir MR-fötin sín. Og flestum fannst þau flott. Jeij. Áætlunarverki lokið. Pöntunin er samt öll í fokki. Bæði peningalega séð og ... fatalega séð. En við reddum því. Enda erfitt að vera með allt 100% fullkomið þegar maður er að panta yfir 400 peysur, 300 boli og svo framvegis. Við erum samt alveg moldrík núna. Húrra fyrir tógakvöldinu!
Death of a Salesman próf á morgun. Ég dýrka þessa bók. Þetta er svo djúpt að ég get ekki hætt að hugsa um allar hliðarnar á þessu verki. Höfundurinn er snillingur.
Bloggið hér fyrir neðan er niðurdrepandi. Ekki lesa það. Þá var ég búin að vera í skólanum í 12 klst og ekki viðræðuhæf.
Ég keypti mér reyndar bók áðan. Hún heitir Völuspá og er barnabók. Þar eru öll ljóðin í Völuspá gert barnahæf, sem er akkurat eitthvað sem ég þurfti. Ég gat ekki sleppt því. Ég elska starfsmannaafsláttinn.
Íbúðin okkar er soldið svona ... í rúst. Það er of mikið að gera. Tiltektin situr alltaf á hakanum. Maður er í skóla, vinnu til að eiga fyrir leigu og mat, þarf að hitta vini sína, læra heima, gefa sér tíma til að tjilla ...
Ég þvoði samt þvottinn minn í fyrsta skipti í 2 vikur í gær. Enda voru það 3 góðar vélar.
Fór á háskóladaginn með Láru um helgina. Byrjuðum í Ráðhúsinu þar sem ég kynnti mér hhs. Heimspeki, hagfræði, stjórnmálafræði. Það var gaman. Svo lá leið okkar í norræna húsið að kynna okkur nám á norðurlöndunum. Allar kynningarnar voru á útlensku, þannig við vorum farnar út eftir 10 mínútur. Mestum tímanum var eytt á efri hæð háskólatorgsins. Þar tók ég bæklinga hægri vinstri og var mjög áhugasöm. Þegar á neðri hæðina var komið voru eintómar náttúrufræðideildakynningar. Oj, foj. Ég tók engan bækling þar en er samt með dágóðan bunka heima. Hvað í andskotanum er ég að gera á náttúrufræðibraut? ...
,, Má bjóða þér bækling? '' - Spurði stelpa mig sem var að kynna líffræði á háskóladeginum. Það hnussaði í mér og ég sagði að það væri algjör óþarfi ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hæ Jógo!
Gaman aðeins að fá innblik í líf þitt. Sakna þín og ykkar. Ég skil vel hvað þig vantar gott frí!! Ég er liggur við hætt að læra, sem er frekar slæmt þar sem að það er nú eða aldrei ef ég ætla að breyta tölunum á því blaði sem munu hafa áhrif á framtíð mína. Freeky! En ég er ekki að geta tekið mig saman í tauninu, komdu með einhver ýtandi orð svo ég nenni að klára verkefnin mín.
Þú ert duglegust. Hvenar má ég koma og taka til hjá ykkur? Ég var í essinu mínu þá.
Freysi froskur er að fara að fermast og þá kem ég í 4 til 5 daga til Íslands, um páskana (verð að vera heima í DK og sortera glósur og byrja á að læra).
En verð að hitta þig þá.
Elska þig.
Kossar og knús Ásgerður.
Hæ Gagga!
Ég sakna þín líka rosalega, litli Dani. Ég er á sama stigi og þú. Ég hef misst áhuga á öllu í augnablikinu.
Einkunnir peinkunnir.
Þú mátt koma núna og taka til. Það er allt í rúst ennþá.
Ýtandi orð: Þú ert bara að gera þetta fyrir sjálfa þig. Ef þú stendur þig illa kemur það öðrum ekkert við. Þetta ert þú, þitt líf og þitt nám. Gerðu þetta núna. Þú átt svo stutt eftir. Það tekur því ekki að slaka á núna.
Hlakka til að sjá þig um páskana.
Elska þig til baka til Danmerkur.
Sakna þín.
:*
Post a Comment