21/02/2009

Sjóvá: skítapakk.

Já góðir hálsar. Það er orðið opinbert. Lífið er ósanngjarnt og ömurlegt.

Tryggingarnar neita að borga mér krónu. Ætli það þyki ekki nógu mikil neyð á Íslandi í dag að missa ofan af sér húsnæðið vegna þess að einhver hálfviti ákveður að kveikja í því. Missa svo aleiguna í þokkabót.

Ég yfirgef Ísland eftir stúdent.

Það er allt að ganga frekar illa þessa dagana. Hvað er ég samt að segja "frekar illa" ? Það gengur auðvitað hörmulega. Ég held að þú getir varla lent í ömurlegri aðstæðum en þetta.

Ég hef ekki orku í neitt. Mig langar bara til þess að fá tíma til að vinna upp hlutina. Vinna upp glataðan tíma. Vinna upp glósur. Get það ekki vegna þess að ég er í vinnu og ég er í skóla. Finnst ömurlegt að það sé ætlast til þess að ég taki próf, skili ritgerðum og flytji fyrirlestra.

Ég skil þetta ekki. Ég trúi þessu ekki. Ég nenni þessu ekki.

Ég er bara búin á því.

Ég vil frí.

2 comments:

Unknown said...

Af hverju vilja þeir ekki borga þér neitt?? Ekki kveiktir þú í? Voðalega er þetta mikið rugl. Er þetta endanleg ákvörðun, er ekkert hægt að "áfrýja" eða neitt?

Jóhanna said...

Ég fæ mér lögfræðiaðstoð, það er klárt mál. Þessu máli er sko ekki lokið.