16/05/2008

Dauðþreyta.

Já góðir hálsar. Níu próf búin.

Vá hvað ég er þreytt. Beint eftir prófið á miðvikudaginn fór ég að vinna. Í gær var ég að læra þýsku og svo tók ég til í herberginu mínu og skipulagði glósur fyrir eðlisfræði og efnafræði. Í dag fór ég í 3 klst stúdentspróf í þýsku og þaðan beint í vinnuna.

Ég er dauðþreytt, og á klukkustund eftir í vinnunni. Ég er sorgleg.

Bara tvö próf eftir. Bara tvö próf eftir. Eðlisfræði og stærðfræði.

Núna eru stelpurnar allar búnar í prófum og eru í djammbústað. Ég ætla í staðinn að læra vel og mikla eðlisfræði. Veivei.

Ég skil mig ekki. Þegar ég var í þýskuprófinu í dag eyddi ég 2 klst í málfræðihlutann! Þá átti ég næstum allt hitt eftir. Tíminn bara gjörsamlega flaug áfram. Áður en ég vissi af átti ég svona 55% eftir af prófinu. Það er tvær langar ritanir, stíl og spurningar úr smásögunum. Herre gud, ég náði samt að klára prófið. Hvernig það tókst skil ég ekki. Undravert.

Íslensk ritgerð er fáránlegasta próf í heimi. Ég labbaði inn, skrifaði ljóta ritgerð á 80 mínútum og hljóp út. Ég hata svona tilgangslaus próf.

Það er mánuður í Danmörku.

78 dagar í Rhódos.

5 dagar í sumarfrí.

Í kvöld ætla ég að borða pítsu, horfa á vídjó og sofa svo út á morgun. Ég á það skilið.

P.s. Ég fékk símtal í gær. Allar skólplagnirnar í íbúðinni minni eru ónýtar og það á eftir að kosta mig svona hálfa milljón að gera við það. Húrra fyrir því að eiga íbúð 19 ára ...

1 comment:

Anonymous said...

hjá mér er bara VIKA í DK..