Já góðir hálsar. Ég hef lokið 4 prófum af 11, þar af 3 stúdentsprófum.
Ég er að deyja.
Ég var í 3 klukkutíma í enskuprófi í morgun. Eftir það fór ég beint að læra fyrir munnlega hlutann, sem ég hafði neyðst til að vanrækja sökum vinnu minnar um helgina. Of lítill tími, og viti menn. Mér gekk illa í prófinu. Jújú, þetta er bara enska, en þegar þú dregur smásögu sem þú hefur ekki lesið í 4 mánuði og öll þekking um vísindagreinina þurrkast á óskiljanlegan hátt út úr heilanum á þér, þá er þér ekki viðbjargandi.
Hef ég minnst á það hvað það er rosalega slæm hugmynd að vinna í prófum?
Ekki á morgun, heldur hinn, er ég að fara að taka stúdentspróf í fagi sem ég hata. Lífræn efnafræði. Ég er svo gjörsamlega algjörlega dauðuppgefin eftir allt stressið og álagið í dag að ég sé mér ekki fært að læra að svo stöddu.
Ég kenni einkirningasóttinni um.
Mér er orðið skítsama hvaða einkunnir ég fæ. Bara að ég nái. MR er ekki í uppáhaldi þessa dagana og þið vitið ekki hvað það er freistandi að fara í áfangaskóla næsta haust og klára um jólin. Án sérstakra stúdentsprófa.
Ég leggst alltaf í mínar neikvæðustu hugsanir þegar prófin eru að gera út af við mig. Ég hugsa alltaf bara nokkur eftir. Sumarið er að koma ...
Verðbólgan er að éta upp alla peningana mína. Það er mögulega kominn kaupandi að íbúðinni minni, en þá kem ég kannski bara út á núlli. Ég vil það ekki. Ég vil ekki hafa það á samviskunni að verðbólgan hafi étið milljónirnar mínar vegna þess að ég keypti íbúð á óhagstæðum tíma.
Ég skil ekki peninga. Vil ekki skilja.
Eina skemmtilega stundin sem ég hef átt alla vikuna var þegar ég horfði á Stellu í orlofi.
Ég vorkenni sjálfri mér óskaplega.
,,En vandamálin eru til að takast á við þau.'' - Stella í orlofi ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment