Já góðir hálsar. Einn og hálfur dagur er klárlega ekki nægur tími fyrir mig. Allavega ekki þegar ég er að læra undir stærðfræðipróf. Þótt ég sé bara á nátt2 þá er þetta samt alveg lúmskt.
Ég allavega svaf ekkert í nótt. Ætlaði að læra allar reglurnar í morgun. Það eiginlega var ekki að ganga upp. Ég þarf meiri tíma í reglur. Ég tók stresskast og hugsaði um það í hvaða skóla ég ætlaði nú að fara í á næsta ári. Á endanum hringdi ég nú samt í hana mömmu og sannfærði hana um að hringja mig inn veika. Ég er alveg veik. Veik á geði af prófstressi.
En ég meina, af hverju að vera í 2 og hálfa viku í prófum þegar þú getur verið þrjár? ...
Eðlisfræðin gekk samt sjúkt vel miðað við getu og fyrri störf. Mjög sátt þar. Mig grunar að ég hafi náð öllum prófum hingað til, en það verður víst bara að koma í ljós um mánaðarmótin.
Áður en ég sækji um að skipta um skóla ætla ég nú fyrst að fara í stærðfræðiprófið. Annars eru Kvennó eða FVA ágætir kostir ...
"It is not enough to do your best. You must know what to do and THEN do your best." - W. Edwards Deming ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment