Já góðir hálsar. Færsla númer 101, sem er einnig mitt núverandi póstnúmer.
Það er alveg einstaklega vont að skrifa á lyklaborðið þannig þetta verður bara stutt.
Íslenskan var semí rúst. Allt Perlu að þakka, sem hringdi í mig klukkutíma fyrir próf og sagði mér hvað kæmi. Þetta yndi.
Efnafræðin áðan var ekki svo mikið rúst. Ég næ prófinu vonandi. Ástæðan fyrir því að það er svo vont að skrifa á lyklaborðið er sú að ég nagaði neglurnar mínar heldur betur í prófinu áðan. Blæddi úr þremur puttum.
Fyrstu 2 klst í prófinu var ég eitthvað voða lítil í mér en síðasta klukkutímann náði ég að reikna helling. Þannig ég náði á endanum að svara alveg svona 70% af prófinu, og ég þarf bara að ná 4 til að ná ... ætla bara svo sannarlega að vona að það takist.
Næsta próf er brandari. Íslensk ritgerð á morgun. Svo fer ég að vinna. Á föstudaginn er svo stúdentspróf í þýsku, og þá fer þessu nú bráðum að ljúka. Þetta er búið að vera rosalega fljótt að líða.
Eftir vinnu á föstudagskvöldið er stefnan sett á Snæfellsnes. Þar munum við Perla læra okkur til ógeðis með hjálp orkunnar frá Snæfellsjöklinum. Eðlisfræði verður sko tekin í bakaríið ... eða svo gott sem ...
,, Everyone has his day and some days last longer than others." - Winston Churchill ...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
haha hva' dreymdi perlu hvað kæmi á prófinu eða:D
haha hva' dreymdi perlu hvað kæmi á prófinu eða:D
Neinei ... Knútur sagði ykkur bara hvað kæmi. Ólafur var ekki alveg svo góður ;)
haha já hann gaf veeeel í skyn að við skyldum lesa VEL um Hallgrím! bjargaði mér alveg;D
Post a Comment