16/05/2007

Heitur gaur.

Já góðir hálsar. Ég held að ég sé fallin í stærðfræði.

Ekki það að ég kunni ekki að reikna dæmi.

Prófið var bara byggt upp af öllum þyngstu dæmunum sem mögulega hægt var að búa til úr námsefninu.

Ég vil koma á framfæri þökkum til stærðfræðikennara í MR, fyrir að hafa náð að búa til það erfiðasta próf sem ég man eftir að hafa tekið á ævinni.

Ég kemst ekki einu sinni á einkunnaafhendinguna til að sjá hvort ég hafi fallið í einhverju eður ei. Ég verð á sjúkrahúsinu.

Annars gekk íslenskan ágætlega í dag. Það var bara svo heitur gaur að sitja yfir okkur í prófinu að ég vissi ekki hvert ég ætlaði.

Úff.

Hvað á ég að gera ef ég fell á árinu?

Bara líffræði, efnafræði og enska eftir :D:D:D:D:D:D

2 comments:

Anonymous said...

jóhanna (L) Villi

omg omg omg..

ég ætla að senda honum linkinn á síðuna þína.. og skógarlíf;)

HAHA

kv. jor feivorit bekkjarfélagi

Jóhanna said...

Já endilega Hildigunnur! Ég er orðin 18 ára ...

A student dating a teacher ... classic ;);)

Hehe =D