08/05/2007

Prófalestur. Óáhugaverð færsla.

Já góðir hálsar. Ég er orðin stúdent í dönsku. Hefur í för með sér heldur blendnar tilfinningar. Þar fer grein sem ég hef ekki þurft að hafa neitt fyrir. Í staðinn byrja ég í eðlisfræði næsta haust. Hlakka til.

Hlakka ekki til að missa söguna út.

Búin að vera uppí fjölbrautarskóla með Láru í allan dag. Við vorum báðar að læra undir sögupróf. Ég hef engar áhyggjur af sögu. Langar bara í 9, því allt er þegar þrennt er.

Ég var að átta mig á því að ég kann ekki neitt í þýsku. Prófið er eftir 2 daga. Ómæ.

Verð allan daginn á morgun að læra uppí fjölbrautarskóla. Það er rosalega fínt. Það fattar enginn annar að það má læra þar. Svo maður er næstum einn.

Held annars að ég eigi stóran þátt í því að meirihlutinn af bekknum mínum eigi eftir að ná dönsku. Getið þakkað mér seinna ...

Var að horfa á 'I am David'. Sjúklega góð mynd.

,, I look to the future because that's where I'm going to spend the rest of my life.'' - George Burns

2 comments:

Anonymous said...

Fallegur textinn, þessi seinasti. Meikar mikið sens.

Ég hlakka til að missa söguna út.. veit samt ekki hvort hún fari þessa önn, þar sem ég var í prófinu og gekk illa, verr verst :/

Krúsí:*

Jóhanna said...

Manni gengur alltaf frekar illa í söguprófum. En það rætist samt oft úr þessu öllu saman :)

Engar áhyggjur :*