08/05/2008

Nummer hundert.

Já góðir hálsar. Þetta er færsla númer 100.

Ég sit hér lokuð inná bókasafni, hlustandi á 10 ára gömul Eurovision lög og lesandi enn eldri íslensk ljóð.

Ákvað að blogga í tilefni af því hvað ég er sorgleg.

Var í lífrænni efnafræði í dag. Svaraði 95% af prófinu. Það er ekki fall, held ég ...

Það er svo mikill léttir að vera LOKSINS búin með þetta HELVÍTIS fag og fá að losna undan þessu ógeði.

Sama gleði mun fást eftir efnafræði og eðlisfræði. Nema komi til endurtökuprófa. Þá eru aðeins fleiri dagar í frelsi.

Mér líður samt svolítið núna, að fyrst ég gat náð lífrænni ætti ég líka að geta rest.

,, Ég sá sólina, og mér fannst þá sem ég sæi göfugan Guð.'' - Ullabjakk á allar 200 vísurnar fyrir prófið á morgun ...

2 comments:

Anonymous said...

Pfft.. þú hefur þá svarað fleiri prósentum en ég... Gargípargí...
Lífræn var aldrei neitt gífurlegt issue hjá mér (þó að ég hafi verið að fá all-time-low einkunnir undir það seinasta).. hún var bara eitt ár.. efnafræði eru heil ÞRJÚ!! Það er Everestið mitt í þessari törn... Og svo tekuru ekki endurtökupróf í stúdentsprófum.. og þú fellur ekkert í líffr/ísl/stæ!!

GANGI ÞÉR VEL!!

birta said...

æjibara að hugsa um þessar vísur gefur mér ælu upp í kok. jájá. allir vildu lilju kveðið hafa... plöh.