Já góðir hálsar. Þýska má fara fjandans til. Prófið var allt of langt og allt of erfitt. Meiraðsegja Perlu fannst það, en hún bjó í Þýskalandi um nokkura ára skeið.
Helvítis.
Annars fórum við Perla beint á Snæfellsnesið eftir prófið, eftir smá stopp á Akranesi þar sem ég kaus. Þar á hún snoturt sveitasetur og hálft fjall.
Ecspressóvélin bjargaði bæði lífi mínu og geðheilsu um helgina.
Ég lærði mikið, en ekki nóg.
Skruppum á Landnámssetrið í Borgarnesi um helgina. Þar er sýning útfrá Egils-sögu. Voðalega fróðlegt. Nei, það var ekki til gamans gert. Það er íslenskupróf á miðvikudaginn.
Ég sé fram á svefnlausa nótt. Bæði vegna þess að ég á eftir að læra mikið og ég held að þessir tveir bollar af tvöföldu ecspressó sem ég fékk mér eftir kvöldmat eigi eftir að hafa langvarandi áhrif.
Viva la freedom. Bara 10 dagar.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
"Skruppum á Landnámssetrið í Borgarnesi um helgina"æj þið eruð voða krúttó:'D
Hey ég fór líka á landnámssetrið fyrir Egilssögu próf.. það virkar geðveikt vel :D
Allt til að forðast stærðfræðina Hulda :D
Já, Aníta. Það var fín upprifjun.
espresso segir maður..
sorry, vinn á kaffihúsi og þetta stingur í augun
-birta besserviss
Post a Comment