25/05/2007

Próflokadjamm.

Já góðir hálsar. Til hamingju með að vera búin í prófunum, nema Ásgerður.

Eftir síðasta prófið á miðvikudaginn var skellt sér í góðan innkaupaleiðangur. Kringlan, Laugarvegurinn og Smáralindin voru kembd. Ég uppskar kápu, kjólabol, belti og klút. Svo keyptum við Lára okkur efni í sitthvorn kjólinn. Nú skal fara að sauma.

Um kvöldið keyrði Lára greyið ein heim á Akranes og ég fór út að borða með stelpunum úr bekknum mínum. Við fórum á Sólon, fengum góðan mat og skáluðum fyrir okkur sjálfum. Eftir það var kíkt heim til Huldu í parteei.

Daginn eftir vaknaði ég við hlið Perlu og saman skelltum við okkur upp að borða cherrios. Holl byrjun á góðum degi. Svo fór hún í klippingu á meðan ég þræddi Laugarveginn í allskyns snatti. Ég dundaði mér í 3 klst að gera nákvæmlega ekki neitt. Las svona 3 bækur á Súfistanum á meðan ég kjamsaði á bananasnittu og drakk latté úr skál.

Svo var bara haldið niður í Húsasmiðju að kaupa útilegustóla, dýnur og tilheyrandi ásamt því að kaupa pylsur og snakk í bónus. PartýtjaldIÐ var nú þegar í skottinu á bílnum hennar Kristínar og spenningurinn var í hámarki.

Við lögðum af stað úr Garðabænum um 9 leytið, sóttum lille Lotte og komum við í sjoppunni í Árbænum þar sem lille Lotte gaf 9 ára tombólustelpum bjórinn sinn. Við ákváðum að forðast handtöku og flýja svæðið.

Stemmingin í jeppanum á leiðinni var dúndrandi góð. Kristín, Perla, ég og Hulda kunnum sko að skemmta okkur. Þegar Spice Girls hljómuðu í hátölurunum og raddböndin voru þanin til hins ýtrasta stoppaði lögreglan okkur. Kristín var að keyra á 114 km hraða. Skamm, skamm. Við fengum góða sekt sem við skiptum að sjálfsögðu bróðurlega á milli okkar. Þetta atvik gerði það að verkum að við urðum að stoppa á Café Kidda rót í Hveragerði og pissa. Einnig varð Hulda að þrífa bakhlutann á framsætinu, en hún gaf því vel að éta á leiðinni.

Við vorum komin á staðinn svona um 11 leytið. Við byrjuðum að gera heiðarlega tilraun til að tjalda partýtjaldINU, en það gekk ekki vel, enda yfirgáfu allir strákarnir okkur snemma. Þetta var þeim ofviða. Eftir góðar 90 mínútur ákváðum við að pakka tjaldinu bara aftur ofan í pokann og sofa í sumarbústaðnum sem strákarnir höfðu leigt. Reyndar dáldið leiðinlegt að skilja hina eftir í kuldanum, en þetta er bara survival of the fittest.

Ég fékk svo heila koju útaf fyrir mig, ólíkt því sem var í sumarbústað Jónatan hérna um árið. Maturinn var hins vegar ekki af betri endanum. Við hituðum pylsurnar í örbylgjunni og brauðin voru 1 mm þykk, öll kramin og skemmtileg.

En svona er bara að fara í útilegu. Í sumarbústað.

Morguninn eftir var lille Lotte horfin heim á leið og við tókum til á mettíma. Brunuðum svo í bæinn, þreyttar, en hamingjusamar með lífið, með þau fyrirheit um að þetta yrði endurtekið oft og mörgum sinnum í sumar.

,, Horfiði framan í mig. Ég hefði alveg eins getað sleppt því að mála mig og látið einhvern skíta á andlitið á mér í staðinn. Ég hefði litið alveg eins út. '' - Sagði Perla á leiðinni á Sólon ....

6 comments:

Jóhanna said...

Æjá, myndirnar eru á leiðinni.

Ég set þær inná blog.central.is/johanna89 ;)

Anonymous said...

þetta var svooo gaman!;Dþetta verður gert aftur í sumar ekki spörning

(lille lotte biður að heilsa en hún er búin að vera voooða þreytt í dag)

Jóhanna said...

Þarna þekki ég mína rétt ;)

Verð samt ekkert með ykkur í sumar því ég verð án félagslífs ...

Takk fyrir veturinn samt ... séþig aftur í haust lille Lotte ;)

Hvor for fanden!

Anonymous said...

ekkert svona !írskir dagar..hóhó;)

Jóhanna said...

Ef ég fæ frí ... =)

birta said...

aumingjar! ég svaf í bíl! já, í bíl segi ég! í svona klukkutíma! svo keyrðum við heim klukkan hálfátta um morguninn!

og afhverju svaf ég í bíl? því það var eitthvað fólk í tjaldinu mínu að kúra! hrmpf...